145. löggjafarþing — 95. fundur, 8. apr. 2016.
vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
692. mál
Virðulegi forseti. Mér finnst sorglegt að alþingismenn geti ekki tekið sjálfstæða ákvörðun og samkvæmt eigin sannfæringu. Ég minni á það drengskaparheit gagnvart stjórnarskránni sem við þurfum öll að skrifa undir sem segir að við séum einungis bundin eigin sannfæringu. Ég segi já.