145. löggjafarþing — 109. fundur, 10. maí 2016.
vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefndar.
Með bréfum, dagsettum 4. maí 2016, hefur forseti óskað eftir því, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að hún fjalli um eftirfarandi skýrslur Ríkisendurskoðunar:
Vinnueftirlit ríkisins, skýrsla um eftirfylgni, Mótvægisaðgerðir vegna samdráttar þorskveiðiheimilda árið 2007, skýrsla um eftirfylgni, Þjóðskrá Íslands, og Skipulag og úrræði í fangelsismálum, skýrsla um eftirfylgni.