145. löggjafarþing — 122. fundur, 31. maí 2016.
um fundarstjórn.
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að hafa mörg orð önnur en þau að segja að maður þarf að taka á honum stóra sínum að sitja þegjandi undir þeim ræðum sem hv. þm. Vigdís Hauksdóttir hefur hér flutt og kemur úr hörðustu átt að tala þar um dylgjuumræður.