145. löggjafarþing — 125. fundur, 2. júní 2016.
Laxnesssetur að Gljúfrasteini í Mosfellsbæ.
184. mál
Virðulegur forseti. Örstutt af því að ég tók ekki þátt í umræðum áðan. Ég vil leyfa mér að þakka hv. allsherjar- og menntamálanefnd fyrir að afgreiða þessa þingsályktunartillögu mína og fleiri og tel að þarna sé skáldinu frá Gljúfrasteini gert vel og hátt undir höfði. Bestu þakkir.