149. löggjafarþing — 85. fundur,  27. mars 2019.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:30]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti vill tilkynna að borist hafa bréf frá utanríkisráðherra og heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 64, um orkupakka ESB, eftirlitsstofnanir sambandsins og EES-samninginn, frá Óla Birni Kárasyni; fyrirspurn á þskj. 1036, um áskrift að dagblöðum, tímaritum og öðrum miðlum, frá Birni Leví Gunnarssyni; fyrirspurn á þskj. 978, um fjölda þeirra sem hafa hreyfihömlunarmat og fjölda þeirra sem nota hjálpartæki, frá Guðmundi Inga Kristinssyni; og fyrirspurn á þskj. 1020, um hjúkrunar- og dvalarrými, frá Unni Brá Konráðsdóttur.