149. löggjafarþing — 90. fundur,  8. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:47]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Mig langar hér í seinna svari að inna hv. þingmann eftir því — þar sem umræðan hefur verið ansi víðfeðm og það hafa verið fengnir til landsins sérfræðingar erlendis frá og jafnvel hefur ítarefni og minjagripir borist hingað í töluverðum mæli í sambandi við umræðuna um þetta mál — hvort hann viti til þess að þessi umræða eða barátta sé með einhverjum hætti fjármögnuð erlendis frá.