149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

beiðni um frestun dagskrármáls.

[20:17]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseta er kunnugt um að stjórnmálaflokkurinn Viðreisn muni eiga þriggja ára afmæli í dag. Þau gera sér glaðan dag af því tilefni, en fundarhald það sem hér fer fram er í fullu samráði við forystumenn þess flokks og þau gera engar athugasemdir við það að þetta dagskrármál verði rætt áfram. Þau fylgjast með því eftir atvikum en virðast líta svo á að þeirra þingmenn hafi sagt allt sem þeir þurfa að segja í þessari umræðu. Þannig að ég þakka hv. þingmanni fyrir ábendinguna en fyrir þessu var hugsað og þetta er gert í fullu samráði við viðkomandi flokk.