150. löggjafarþing — 98. fundur, 6. maí 2020.
vernd uppljóstrara.
362. mál
Herra forseti. Mál þetta er að mörgu leyti alveg ágætt. Við viljum hins vegar gjarnan að það fari — ég er ekki alveg klár á því hvort hugmyndin var að það færi aftur til nefndar en við leggjum það til og að þar verði kannski skoðuð eitt eða tvö atriði enn frekar en gert hefur verið.
Við munum því ekki greiða atkvæði í þessari atrennu.