150. löggjafarþing — 129. fundur,  29. júní 2020.

lyfjalög.

390. mál
[10:42]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég var á nefndaráliti í þessu máli en verð að segja að því miður er það svo illa unnið og svo viðamikið að eiginlega er ekki hægt að hleypa málinu í gegn eins og það er. Þess vegna mun ég vera á gulu.