stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Nú flytur hæstv. forsætisráðherra stefnuræðu sína fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og fram fara umræður um hana, sem verður útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu.
Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 12 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en flokkur forsætisráðherra hafa sex mínútur í fyrstu umferð, fimm mínútur í annarri og í þriðju umferð hafa þingflokkarnir fjórar mínútur hver.
Röð flokkanna í öllum umferðum er þessi:
Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Miðflokkurinn, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn og Flokkur fólksins.
Ræðumenn fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í fyrstu umferð, Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra í annarri umferð og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Miðflokkinn verða Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 3. þm. Norðaust., í fyrstu umferð, í annarri Bergþór Ólason, 4. þm. Norðvest., og í þriðju umferð Ólafur Ísleifsson, 10. þm. Reykv. n.
Fyrir Samfylkinguna tala Logi Einarsson, 5. þm. Norðaust., í fyrstu umferð, Guðmundur Andri Thorsson, 4. þm. Suðvest., í annarri umferð og Helga Vala Helgadóttir, 4. þm. Reykv. n. í þriðju.
Fyrir Sjálfstæðisflokkinn tala Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Bryndís Haraldsdóttir, 2. þm. Suðvest. og í þriðju umferð Páll Magnússon, 1. þm. Suðurk.
Ræðumenn Pírata verða í fyrstu umferð Halldóra Mogensen, 11. þm. Reykv. n., Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 4. þm. Reykv. s., í annarri og í þriðju umferð Björn Leví Gunnarsson, 11. þm. Reykv. s.
Fyrir Framsóknarflokkinn tala í fyrstu umferð Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, í annarri Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og í þriðju umferð Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.
Ræðumenn Viðreisnar verða í fyrstu umferð Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, 7. þm. Suðvest., Hanna Katrín Friðriksson, 7. þm. Reykv. s., í annarri og Jón Steindór Valdimarsson, 13. þm. Suðvest., í þriðju umferð.
Fyrir Flokk fólksins tala í fyrstu og þriðju umferð Inga Sæland, 8. þm. Reykv. s., og Guðmundur Ingi Kristinsson, 12. þm. Suðvest., í annarri umferð.
Þingmenn utan flokka, þau Andrés Ingi Jónsson, 9. þm. Reykv. n., og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, 3. þm. Suðvest., hafa fjórar mínútur hvor við lok fyrstu umferðar.