mannabreytingar í nefndum.
Forseta hefur borist bréf, dagsett 6. október 2020, frá formanni þingflokks Flokks fólksins, um mannabreytingar í nefndum þingsins, samanber 16. gr. þingskapa. Inga Sæland tekur sæti í Íslandsdeild Norðurlandaráðs í stað Guðmundar Inga Kristinssonar, sem verður varamaður í þeirri nefnd. Guðmundur Ingi Kristinsson tekur sæti í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins í stað Ingu Sæland, sem verður varamaður í þeirri nefnd.
Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.