151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

orð þingmanns í störfum þingsins.

[11:11]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Nú verður forseti að leyfa sér að benda á að 17. mál á dagskrá þessa fundar er það þingmál sem hér er verið að vitna til, þ.e. um aðgengi einstaklinga sem ferðast til Íslands að þungunarrofi, þingsályktunartillaga flutt af hv. þm. Rósu Björk Brynjólfsdóttur og fleirum. Forseti telur fara betur á því að umræður um þetta þingmál verði þegar það kemur á dagskrá en ekki undir fundarstjórn forseta.