151. löggjafarþing — 53. fundur,  4. feb. 2021.

sóttvarnalög.

329. mál
[16:00]
Horfa

Frsm. velfn. (Ólafur Þór Gunnarsson) (Vg):

Virðulegi forseti. Málið var kallað aftur til velferðarnefndar á milli 2. og 3. umr. vegna atriða er snúa að alþjóðlegum skuldbindingum, þar með talið samanburði á löggjöf við önnur Norðurlönd. Nefndarálitið skýrir sig sjálft og nefndin skilar því samhljóða, nokkrir nefndarmenn þó með fyrirvara, en nefndin leggur til að málið verði samþykkt óbreytt og sér ekki ástæðu til að gera breytingartillögur við það við 3. umr.