151. löggjafarþing — 90. fundur,  5. maí 2021.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:00]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá félags- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 822, um tekjur og skerðingar ellilífeyrisþega, frá Ólafi Ísleifssyni, á þskj. 1090, um leiðsöguhunda, frá Andrési Inga Jónssyni, og á þskj. 918, um heimilisuppbót og sérstaka uppbót almannatrygginga og aldurstakmörk námsmanna, frá Ólafi Þór Gunnarssyni.