151. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júlí 2021.

Frestun á skriflegum svörum.

[11:17]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Fundi er fram haldið á Alþingi. Ég býð hv. alþingismenn velkomna til starfa á þessum sumarþingauka og heilsa sömuleiðis starfsfólki Alþingis.

Borist hafa bréf frá utanríkis- og samvinnuráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspunum; á þskj. 1130, um ráðgjafaþjónustu, verktöku og tímabundin verkefni, frá Gunnari Braga Sveinssyni; á þskj. 1147, um lagalega ráðgjöf, frá Birni Leví Gunnarssyni; á þskj. 1378, um landgrunnskröfur Íslands, frá Andrési Inga Jónssyni; á þskj. 1571, um fjölda innleiddra reglna Evrópusambandsins, frá Gunnari Braga Sveinssyni; á þskj. 1593, um kostnað við ferðir ráðherra innan lands, frá Þorsteini Sæmundssyni; og á þskj. 1449, um undanþágur frá EES-gerðum, frá Sigríði Á. Andersen.