152. löggjafarþing — 3. fundur, 2. des. 2021.
fjárlög 2022.
1. mál
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni greinargóð svör. Ég held að við getum alveg verið sammála um að það megi gjarnan og þurfi að auka nýsköpun í landbúnaði. En engu að síður fannst mér bara ekki rétt að spyrða þetta saman með þeim hætti sem gert var og það var aðallega það sem ég vildi gera athugasemd við.