Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2022.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

61. mál
[17:13]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um lögfestingu á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Meðflutningsmenn mínir eru hv. þingmenn Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon, og Tómas A. Tómasson, þingflokkur Flokks fólksins, og hv. þm. Viðreisnar, Þorgerður K. Gunnarsdóttir.

Áður en lengra er haldið langar mig að taka það fram að öllum alþingismönnum sem og ráðherrum voru send boð um að vera með á öllum þeim 70 þingmannamálum sem Flokkur fólksins lagði inn á þingsetningardaginn, á öllum málunum. Það er öllum boðið að vera með. Hér er ég sem sagt að fara að mæla fyrir löggildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Það var einn þingmaður, virðulegi forseti, sem sá ástæðu til þess að fylgja málinu eftir með okkur. Ég vona að það sé vegna þess að þetta hafi nú bara týnst í póstflóðinu sem við gjarnan erum að fá. Ég vona að það sé ekki vegna þess að 56 alþingismönnum þyki ekki ástæða til að löggilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Í 1. gr. frumvarpsins segir svo:

„Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur lagagildi á Íslandi. Samningurinn um réttindi fatlaðs fólks er birtur sem fylgiskjal með lögum þessum.“

Í 2. gr. segir: „Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að frumvarp þetta var lagt fram á 152. löggjafarþingi, 34. mál, en náði ekki fram að ganga og er nú lagt fram að nýju efnislega óbreytt.

Fatlað fólk hefur ávallt þurft að berjast fyrir sjálfsögðum mannréttindum. Það er ekki aðeins barátta gegn fordómum heldur einnig barátta gegn ofbeldi og barátta fyrir jafnrétti og sanngjörnum lífsgæðum. Mikið hefur áunnist í þeirri baráttu á undanförnum áratugum, bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi. Baráttunni er þó langt í frá lokið og enn er langt í land og nú er kominn tími til að stíga næsta skref í átt að réttlæti og jafnrétti.

Einn mikilvægasti áfanginn í þeirri réttindabaráttu er samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Samningurinn hefur það að markmiði að tryggja réttindi fatlaðs fólks til jafns við aðra. Í samningnum er fjallað um þau réttindi sem aðildarríkjum ber að tryggja fötluðu fólki og með hvaða hætti þau skuli tryggð.

Ísland undirritaði samninginn strax á upphafsdegi hans, 30. mars 2007. Undirritun alþjóðasamninga er almennt aðeins viljayfirlýsing en fullgilding felur í sér þjóðréttarlega skuldbindingu til að uppfylla þær skyldur og tryggja þau réttindi sem alþjóðasamningar kveða á um. Strax í kjölfar undirritunar samningsins hófst barátta fyrir því að fá samninginn fullgiltan af Íslands hálfu og hefur hún staðið yfir alla tíð síðan. Árið 2016 samþykkti Alþingi loks að heimila ríkisstjórninni að fullgilda samninginn. Hann var í kjölfarið fullgiltur 6. desember 2016 og birtur í C-deild Stjórnartíðinda 29. júní 2017.

Almennt er viðurkennt að íslenskur réttur byggist á hinni svokölluðu tvíeðliskenningu. Í henni felst að alþjóðasamningar sem Ísland er aðili að hafa ekki bein réttaráhrif. Til þess að alþjóðasamningar hafi bein réttaráhrif þarf að lögfesta þá. Það er ekki flóknara en það. Lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks yrði ómetanleg réttarbót og tryggði með lögum öll þau réttindi sem samningurinn kveður á um. Þess vegna hefur ítrekað verið kallað eftir því af hálfu Öryrkjabandalags Íslands, Landssamtakanna Þroskahjálpar, Mannréttindaskrifstofu Íslands og af hálfu almennings að Alþingi lögfesti samninginn.

Árið 2019 samþykkti Alþingi tillögu um að fela ríkisstjórninni að undirbúa lögfestingu, fyrir þremur árum síðan, og ætti að leggja fram frumvarp þar um eigi síðar en sem sagt 13. desember 2020, fyrir tæpum tveimur árum. Í kjölfarið var ákveðið að þýða samninginn að nýju. Fyrirslátturinn var sem sagt að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks þótti ekki nógu vel þýddur, það var eitt af því sem var dregið fram sem afsökun fyrir því að hann hefði ekki þegar verið fullgiltur. Ný þýðing var lögð fram í mars 2021 og samþykkt á Alþingi í maí sama ár. Nú stendur aðeins eftir að ganga formlega frá lögfestingunni. Ekki er seinna vænna enda sá frestur sem mælt var fyrir um í ályktun Alþingis löngu liðinn. Í frumvarpinu er því lagt til að veita samningnum lagagildi á grundvelli þeirrar þýðingar sem samþykkt var á Alþingi hinn 11. maí 2021.

Nokkur fjöldi umsagna barst um frumvarp þetta á 152. löggjafarþingi. Öryrkjabandalag Íslands, Landssamtökin Þroskahjálp, Íslandsdeild Amnesty International, NPA-miðstöðin, Mannréttindaskrifstofa Íslands og réttindagæslumaður fatlaðra í Reykjavík og á Seltjarnarnesi lýstu yfir stuðningi við frumvarpið. Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga kom fram að mikilvægt væri að kostnaðarmeta áhrif lögfestingar samningsins vegna þess að hún kynni að hafa fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög. Nokkrir umsagnaraðilar gerðu athugasemd við að frumvarpið hefði farið til velferðarnefndar og töldu að það ætti frekar heima hjá allsherjar- og menntamálanefnd. Eldri þingmál sem vörðuðu samninginn hafi verið til umfjöllunar þar og þá sé lögfesting samningsins fyrst og fremst mannréttindamál frekar en velferðarmál. Þetta er svo sem eitthvað sem við sem viljum lögfesta samninginn erum ekki aðallega að velta fyrir okkur vegna þess að við treystum 100% virðulegum forseta og starfsfólkinu hér til þess að koma frumvörpunum okkar á þann stað sem þau eiga heima hjá fastanefndum þingsins.

Vert er að minnast sérstaklega á umsögn Ágústs Fannars Leifssonar. Hann nefnir mál sitt sem dæmi, sem hefur verið til meðferðar hjá stjórnvöldum og hefði mögulega farið á annan veg ef búið hefði verið að lögfesta samninginn. Um mikilvægi þess að lögfesta samninginn segir Ágúst:

„[Samningurinn] segir að ég sé jafn mikils virði og aðrir þótt ég sé fatlaður. Hann segir að ófatlað fólk hafi búið til samfélag fyrir sig og gleymt fólki eins og mér þegar það bjó til lög og reglur og tók ákvarðanir fyrir samfélagið. Og hann segir að samfélagið eigi að aðlaga sig að mér og öðru fötluðu fólki.“

Alþingi samþykkti einróma þingsályktunartillögur um fullgildingu samningsins, um lögfestingu samningsins og um nýja þýðingu á samningnum. Nú er kominn tími til að lögfesta samninginn og tryggja þá réttarvernd sem fatlað fólk á skilið.

Enn á ný stend ég hér og mæli fyrir réttlætismáli, grundvallarmannréttindamáli sem er búið að velkjast um, Íslendingum til ævarandi skammar vegna þess að flestallar aðrar þjóðir, siðmenntaðar þjóðir í Evrópu, hafa löggilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ætli það sé svo að þessi dráttur á löggildingu snúist fyrst og síðast um peninga? Er það of dýrt að veita fötluðu fólki þau mannréttindi sem það á skilyrðislaust að fá? Er það þess vegna sem er verið að draga það að löggilda samninginn? Ég sé enga aðra ástæðu, ekki nokkra, en það liggur í hlutarins eðli að sá þjóðfélagshópur sem er undir í þessum samningi Sameinuðu þjóðanna er fatlað fólk og það hefur verið litið á þennan þjóðfélagshóp, eins og ég hef margoft sagt og upplifði sjálf þegar ég var í þessu kerfi sem fatlaður einstaklingur, sem hóp tíunda flokks þjóðfélagsþegna. Það er algjör mismunun, fordæming og niðurlæging að búa í samfélagi sem kemur svona fram við mann þegar maður þarf í rauninni á aðstoð að halda.

En það góða í stöðunni akkúrat núna er að hæstv. ríkisstjórn kom með það inn í sáttmálann sinn að löggilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. En ef þau bera gæfu til að halda út kjörtímabilið þá erum við í Flokki fólksins hrædd um að þau munu ekki uppfylla þetta loforð fyrr en 27 sekúndum fyrir næsta kjördag, það verði hreinlega ekki staðið við þessa skuldbindingu hjá ágætri ríkisstjórn fyrr en þau neyðast til þess og mega til, nokkrum sekúndum fyrir kjördag. Þess vegna erum við að mæla fyrir þessu máli enn og aftur í þeirri góðu trú og von að því verði fylgt eftir og það verði samþykkt sem lög frá Alþingi sem allra fyrst. Það nefnilega skýtur svolítið skökku við ef ríkisstjórnin og meiri hlutinn fellir nú þetta frumvarp, þá eru þau komin í ótrúlega mikla mótsögn við sáttmálann sem þau sjálf gerðu sín á milli áður en þau endurnýjuðu sig upp á nýtt í nýju samstarfi á yfirstandandi kjörtímabili.

Breytingin sem yrði á högum fatlaðra á Íslandi ef þessi samningur verður löggiltur er algerlega ómetanleg og ávinningurinn algerlega ómetanlegur. Hver þekkir ekki umræðuna um NPA-þjónustu, notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fólk með mjög miklar þarfir til hjálpar, fólk sem er í rauninni ósjálfbjarga án þess að fá utanaðkomandi aðstoð? Allir eiga rétt á slíkri aðstoð. En nei, við veitum þá þjónustu með kvótakerfi. Það er kvótakerfi á NPA-aðstoð fatlaðra á Íslandi. Það geta ekki allir fengið sem vilja og þurfa. Þannig er nú það. En með löggildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks yrði algerlega ómögulegt að ætla að kvótasetja þessa þjónustu fyrir fatlaða vegna þess að enginn einasti dómstóll myndi dæma það öðruvísi en svo að það væri verið að brjóta á þegnunum hvað þetta varðar. Hagurinn af því að löggilda þennan samning er algerlega ótvíræður. Það fer ekki á milli mála.

Ég verð að segja að ég bíð spennt eftir því að sjá hvernig málinu reiðir af í hv. velferðarnefnd en þangað vísa ég frumvarpinu. Ég hvet alla til að senda inn umsagnir um frumvarpið og hvet alla til að fylgja því eftir og sjá hvaða leið það á í gegnum þingið, hver viljinn er raunverulega til lögfestingar og hvort við stöndum ekki fleiri saman að þessu réttlætismáli heldur en bara meðflutningsmenn fyrir utan þingflokk Flokks fólksins, eins og má ætla.

Virðulegi forseti. Ég vísa frumvarpinu til hv. velferðarnefndar.