154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

704. mál
[20:28]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vona að hv. þingmenn afsaki það að ég komi hérna aftur en ég hreinlega gleymdi að þakka efnahags- og viðskiptanefnd fyrir góða vinnu og að hafa gert þær breytingar sem búið er að leggja fram hér. Þær eru held ég allar til hins góða. Ég vil að lokum, bara örstutt, þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir gott samstarf við alla flokka í þessu máli og starfsfólki ráðuneytisins.