útlendingar.
Virðulegur forseti. Andsvar síðara sinni og í síðasta sinn, ég lofa því. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Þetta er nefnilega mjög áhugavert, þetta er mjög breið og mikil vinna. Það sem við ræðum hér í dag er bara einn liðurinn í þessu öllu saman en þarna eru mjög mörg atriði undir. Ég hvet hv. þingmann til að skoða þetta vegna þess að ég hjó eftir því í ræðunni að hv. þingmaður kom inn á ansi margt af því sem er verið að reyna að sjá fyrir. Ég hakka til að eiga áframhaldandi samtal um það við hv. þingmann, bæði hér í þingsal og á göngunum í framhaldinu.