154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

Menntasjóður námsmanna.

935. mál
[20:06]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020, sem varðar ábyrgðarmenn og námsstyrki.

Með frumvarpinu er lögð til rýmkun á skilyrðum fyrir námsstyrki þannig að námsmenn geti fengið styrk vegna eininga af tveimur námsleiðum í stað einnar áður. Þá eru lagðar til breytingar sem snúa að því hvernig fjármögnun Menntasjóðs námsmanna skuli háttað og loks breytingar sem felast í því að afnema ábyrgðarmannakerfi námslána að fullu.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögnin eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar árétta sérstaklega að meiri hlutinn telur að þau skref sem eru stigin með fyrirliggjandi frumvarpi séu til bóta og að með þeim sé brugðist við ákveðnum annmörkum sem fram hafa komið frá gildistöku laga um Menntasjóð námsmanna, nr.?60/2020. Meiri hlutinn áréttar að með frumvarpinu er ekki verið að bregðast við öllum athugasemdum hagaðila en að vinna við heildarendurskoðun laganna stendur yfir. Sú vinna byggist m.a. á grundvelli helstu niðurstaðna í skýrslu háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem var lögð fram í desember 2023 um mat á endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna. Þá segir í minnisblaði háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis til nefndarinnar, dags. 22. maí 2024, að í heildarendurskoðun verði m.a. horft til athugasemda sem fram hafi komið á síðustu árum, auk þess sem áhersla verði lögð á víðtækt samráð við helstu hagaðila.

Nefndin fjallaði um rýmkun á skilyrðum fyrir námsstyrki. Með frumvarpinu er lagt til að rýmka heimildir varðandi námsframvindu í tengslum við námsstyrki með 30% niðurfellingu lána við námslok. Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi þess að rýmka skilyrði svo að nemendur sem eru lánþegar hjá Menntasjóði námsmanna hafi tök á að skipta um námsbrautir og fræðigreinar án þess að það hafi áhrif á skilyrði þeirra til að ávinna sér námsstyrk.

Þá fjallaði nefndin um niðurfellingu ábyrgðarmannakerfis námslána. Með frumvarpinu er lagt til að ábyrgðarmannakerfi lána úr Lánasjóði íslenskra námsmanna samkvæmt eldri lögum og lána úr Menntasjóði námsmanna verði fellt niður að fullu. Eftir breytinguna verður í engum tilvikum kallað eftir því að lánþegi afli ábyrgða hjá þriðja aðila og þær ábyrgðir sem til staðar eru samkvæmt eldri og gildandi lögum falla niður.

Í umsögn frá umboðsmanni skuldara er málinu fagnað en að mati embættisins voru það mistök að fella ekki niður ábyrgðarmannakerfið að öllu leyti við gildistöku núgildandi laga um Menntasjóð námsmanna. Embættið bendir þó á orðalag í greinargerð með frumvarpinu í skýringum við 4. gr. þar sem segir að þetta ákvæði gildi ekki gagnvart lánum sem voru í vanskilum við gildistöku gildandi laga, en hafi síðar verið komin í skil. Umboðsmaður skuldara bendir á að það þurfi að vera alveg ljóst að hafi lán, sem var í vanskilum við gildistöku laga um Menntasjóð námsmanna, verið komið í skil beri engu að síður að fella niður ábyrgðarskuldbindinguna. Þá er í umsögninni jafnframt vakin athygli á því að til skoðunar komi fleiri tilvik þar sem Menntasjóður námsmanna hefur krafist sjálfskuldarábyrgðar. Að mati umboðsmanns skuldara þurfi að gæta þess að ábyrgðarskuldbindingar verði felldar niður í öllum tilvikum. Er í því samhengi bent á endurgreiðsluskuldabréf vegna ofgreiddra námslána og vanskilaskuldabréf vegna uppgreiðslu vanskila.

Í minnisblaði háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis, dags. 22. maí 2024, kemur fram að með skýringum við 4. gr. frumvarpsins sé áréttað að verði ábyrgðarmannakerfið lagt niður hafi það ekki áhrif á þegar uppgerð námslán, hvort sem þau hafa verið gerð upp af lánþega sjálfum eða ábyrgðarmanni lánsins. Að mati ráðuneytisins sé aftur á móti alveg skýrt að ábyrgðir þeirra sem gengist hafa í ábyrgð á námslánum sem komið hefur verið í skil falli niður verði frumvarpið að lögum.

Meiri hlutinn tekur undir fyrirhugaðar breytingar og telur að með þeim sé stigið mikilvægt skref með því að afnema endanlega úr lögunum sjálfskuldarábyrgðarmannakerfi námslána. Meiri hlutinn tekur þó jafnframt undir mikilvægi þess að það sé alveg ljóst að með frumvarpinu sé kveðið á um að ábyrgðir sem enn eru til staðar í ábyrgðarkerfi námslána verði að fullu felldar úr gildi og leggur því til breytingu þess efnis til að taka af allan vafa, sem gerð verður nánari grein fyrir.

Meiri hluti nefndarinnar leggur til breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar ábyrgðarskuldbindingar vegna endurgreiðslu- og vanskilaskuldabréfa. Meiri hlutinn tekur undir ábendingar umboðsmanns skuldara um að gæta þurfi þess að ábyrgðarskuldbindingar verði felldar niður í öllum tilvikum. Bent var á að Menntasjóður námsmanna fari fram á að lánþegi útvegi sjálfskuldarábyrgð til tryggingar skuld vegna endurgreiðsluskuldabréfa í tilvikum þar sem lánþegi hefur fengið ofgreitt námslán. Meiri hlutinn leggur því til breytingu á frumvarpinu þess efnis til að taka af allan vafa um að ábyrgðir námslána sem falla niður við gildistöku laganna nái jafnframt til skuldabréfa vegna vanefnda lántaka, oflána eða af öðrum ástæðum.

Í öðru lagi er lögð til breyting er varðar stöðu ótryggra lántaka. Að jafnaði skulu námsmenn sem fá námslán undirrita skuldabréf við lántöku teljist þeir tryggir lánþegar samkvæmt úthlutunarreglum, sbr. 2. mgr. 11. gr. núgildandi laga um Menntasjóð námsmanna. Þá er í 3. mgr. 11. gr. laganna kveðið á um heimild fyrir þá sem teljast ekki tryggir lánþegar til að leggja fram ábyrgðir sem sjóðurinn telur viðunandi. Líkt og segir í greinargerð með frumvarpinu þá verður aðgengi að námslánum lítillega þrengt fyrir tiltekinn hóp einstaklinga með því að afnema 3. og 5. mgr. 11. gr. úr lögunum. Það megi þó takmarka með tilliti til félagslegra aðstæðna lánþega og verði nánar útfært í úthlutunarreglum sjóðsins.

Í sameiginlegri umsögn BHM og Landssamtaka íslenskra stúdenta er því fagnað að afnema eigi ábyrgðarmannakerfi námslána að fullu. Aftur á móti gagnrýna samtökin harðlega breytingu á lögunum sem leiðir til þess að ótryggir lántakar muni ekki hafa aðgang að námslánakerfinu framvegis.

Í minnisblaði háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis til nefndarinnar, dags. 22. maí 2024, kemur fram að um tiltölulega afmarkaðan hóp sé að ræða. Samkvæmt núgildandi úthlutunarreglum sjóðsins telst lánþegi ekki tryggur lántakandi þegar hann er á vanskilaskrá, bú hans hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta, hann fengið niðurfelldar afborganir í kjölfar greiðsluaðlögunar eða ef sjóðurinn hefur þurft að afskrifa lán gagnvart viðkomandi. Lagt sé til að ákvæði um trygga lántakendur verði haldið inni í lögum um sjóðinn en síðan verði tekið tillit til félagslegra aðstæðna lánþega og verði reglur um það nánar útfærðar í úthlutunarreglum Menntasjóðs námsmanna.

Nefndin óskaði frekari skýringa frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti hvað þessa útfærslu varðar. Fram kemur að við breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna falli úr gildi reglur um ábyrgðir og sjálfskuldarábyrgðir sem voru í gildi við gildistöku laganna. Með breytingu á ábyrgðarmannakerfi námslána þarf sjóðurinn eftir sem áður að meta hvort viðkomandi lántaki teljist tryggur lántaki. Komi í ljós að lántaki uppfylli ekki skilyrði um tryggan lántaka ber sjóðnum að kanna ástæður þess að umræddum skilyrðum er ekki náð og horfa til félagslegra aðstæðna viðkomandi. Í þeim tilvikum þar sem líklegt er talið að lántaki geti staðið við skuldbindingar sínar þrátt fyrir að uppfylla ekki skilyrði um tryggan lántaka er sjóðnum heimilt að taka tillit til félagslegra aðstæðna lántakanda við ákvörðun um lánveitingu. Þær félagslegu aðstæður sem líta ber til eru m.a. hvort lántaki hafi börn á framfæri sínu, hvort veikindi eða örorka hafi haft áhrif á fjárhagslega stöðu hans eða aðrar ástæður sem réttlæta að viðkomandi sé veitt lán þó svo að skilyrði um tryggan lántaka séu ekki uppfyllt að öllu leyti.

Meiri hlutinn tekur undir framangreind sjónarmið en telur brýnt að kveðið sé á um heimild fyrir Menntasjóðinn til að taka tillit til félagslegra aðstæðna lánþega við mat á tryggum lánþega í lögunum. Meiri hlutinn leggur því til breytingu á 11. gr. laganna þess efnis að kveðið verði á um að uppfylli lánþegi ekki skilyrði um tryggan lánþega verði heimilt að taka tillit til félagslegra aðstæðna lánþega sem skal útfæra nánar í úthlutunarreglum.

Þá er í þriðja lagi lögð til breyting er varðar úthlutunarreglur. Samkvæmt 36. gr. laga um Menntasjóð námsmanna setur ráðherra úthlutunarreglur um útfærslu og framkvæmd laganna eigi síðar en 1. apríl ár hvert. Meiri hlutinn telur mikilvægt að kveða á um heimild fyrir ráðherra, með ákvæði til bráðabirgða, til að gefa út úthlutunarreglurnar að nýju fyrir komandi starfsár, með vísan til þeirra breytinga sem þarf að gera á reglunum verði frumvarpið að lögum.

Loks leggur meiri hlutinn til breytingar á frumvarpinu sem eru tæknilegs eðlis. Annars vegar varðandi samræmi í 11. gr. laganna vegna niðurfellingar 3. og 5. mgr., m.a. um að fella brott vísun til ábyrgðarmanna í fyrirsögn ákvæðisins. Hins vegar varðandi vísun til fjármála- og efnahagsráðherra í 3. gr. frumvarpsins en að jafnaði er ekki vísað í fagheiti ráðherra í lögum, sbr. lög nr.?126/2011, heldur tilgreint það stjórnarmálefni sem ráðherra fer með.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir álit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Jódís Skúladóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir.

Frú forseti. Ég hef hér gert grein fyrir nefndaráliti okkar í meiri hlutanum og vil leggja áherslu á það að ég tel þetta brýnt skref og ljóst að þeir umsagnaraðilar sem um þetta mál sendu okkur umsagnir voru allir sammála um það, þ.e. mikilvægi þess að afnema ábyrgðarmannakerfið að fullu. En eins og ég hef hér farið yfir á þá var þetta í meðförum nefndarinnar ögn flóknara en kannski leit út fyrir í fyrstu og því erum við hér að leggja til breytingartillögur, fyrst og fremst til þess að skýra það að annars vegar sé heimild hjá ráðherra til að vera með reglugerð varðandi úthlutanir og hins vegar að félagslegar aðstæður eiga ekki að verða þess valdandi að fólk hafi ekki tök á að taka lán hjá sjóðnum.

Virðulegur forseti. Ég vona að þetta mál verði hér að lögum því að mér heyrist á þeim sem hafa á því skoðanir að þetta sé almennt til mikilla bóta.