14.08.1917
Neðri deild: 33. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 939 í C-deild Alþingistíðinda. (3274)

160. mál, lántaka til að kaupa og hagnýta fossa

Á 33. fundi í Nd., þriðjudaginn 14. ágúst, var útbýtt

Frumvarpi til laga um heimild fyrir stjórnina til þess að taka að láni 20000000 króna, til þess að kaupa og hagnýta fossa (A. 446).

Á 37. fundi í Nd., laugardaginn 18. ágúst, var frv. tekið til 1. umr.

Frv. ofseint fram komið. — Leyft í e. hlj., að það mætti taka til umr.