30.04.1923
Efri deild: 51. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 385 í B-deild Alþingistíðinda. (436)
83. mál, fræðsla barna
Frsm. (Karl Einarsson):
Eins og sjest á nál., er farið fram á í frv. þá einu breytingu á fræðslulögunum, að prestar fái greiddan ferðakostnað sinn, þegar þeir eru prófdómendur við barnaskóla. Þetta er fullkomin sanngirniskrafa, og jeg vil mæla með því við háttv. deild, að frv. verði samþykt.