29.03.1924
Neðri deild: 36. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1269 í B-deild Alþingistíðinda. (550)

3. mál, útflutningsgjald

Frsm. (Sveinn Ólafsson):

Jeg skal geta þess, að meiri hl. fjhn. hefir komið sjer saman um að láta óhreyfðar breytingamar á frv. síðan það kom frá efri deild. En af gleymsku láðist okkur að ná í hv. 3. þm. Reykv. (JakM). Held jeg annars, að mjer sje óhætt að fullyrða, að meiri hl. nefndarinnar sje á því, að frv. fái hindrunarlaust að ganga sína leið, þar sem breyting hv. efri deildar á því er að okkar hyggju ekki mikilvæg.