08.05.1925
Neðri deild: 75. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1030 í B-deild Alþingistíðinda. (240)

1. mál, fjárlög 1926

Forseti (BSv):

Viðvíkjandi „talbindindinu“, þá er það rjett, að ýmsir háttv. þdm. kjósa helst, að allir falli frá „orðinu“, en jeg býst ekki við, að því verði viðkomið, þar sem margar brtt. eru fram komnar, sem aldrei hefir verið um rætt. Hitt er fremur ætlandi, að menn geti orðið sammála um það að hafa ekki umr. úr hófi langar.