28.04.1926
Neðri deild: 64. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1247 í B-deild Alþingistíðinda. (832)

126. mál, verðtollur

Jakob Möller:

Það er út af þessari litlu brtt. á þskj. 442, um að undanskilja þvottaefni hærri tollinum. Jeg skal játa, að þetta skiftir í sjálfu sjer ekki miklu máli, en þessi vara er komin niður í 5% toll, og virðist nú óþarft að setja hana aftur upp í 10%. En eins og jeg sagði, skiftir þetta fjarska litlu til eða frá, og mun jeg því ekki orðlengja frekar um brtt.