10.05.1926
Efri deild: 71. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1259 í B-deild Alþingistíðinda. (853)

126. mál, verðtollur

Jónas Jónsson:

Jeg vil aðeins taka það fram, að hvað snertir afgreiðslu fjárlaganna, þá skiftir það engu máli, hvort gengið er út frá hærri vörutolli og tilsvarandi lægri verðtolli, eða öðru viðlíka hlutfalli milli tekjustofnanna. Annars býst jeg við því að tala meira um það atriði, þegar vörutollsfrv. kemur hjer til umr.