25.02.1928
Neðri deild: 32. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3209 í B-deild Alþingistíðinda. (2937)

127. mál, skattgreiðsla h/f Eimskipafélags Íslands

Halldór Stefánsson:

Af því að jeg sje, að hv. frsm. fyrir hönd fjhn. er ekki viðstaddur, vil jeg gera örstutta grein fyrir þessu frv.

Í frv. er ekki farið fram á annað en að framlengja ákvæði, sem hafa gilt undanfarin 5 ár samfleytt. Þegar tekið er tillit til fjárhagsörðugleika fjelagsins annarsvegar og hins góða tilgangs þess hinsvegar, hefir nefndinni þótt rjett að framlengja þessi ákvæði, eins og gert er ráð fyrir í frv. Vona jeg, að frv. fái að ganga til 2. umr.