11.08.1931
Neðri deild: 26. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1320 í B-deild Alþingistíðinda. (2585)

Afgreiðsla þingmála

Héðinn Valdimarsson:

Ég hefi nokkrum sinnum spurt hæstv. forseta, hvernig gengi með mál í nefndum, og hann hefir alltaf lofað því að gefa svar á næsta fundi, en þau svör eru ekki komin enn. Flest af þeim frv., sem við jafnaðarmenn höfum flutt, liggja þar enn kyrr.

Ég veit ekki, hvort hæstv. forseti er viðbúinn að svara því, hvernig n. starfa, en ég vil mælast til, að frv. um jöfnunarsjóð ríkisins og frv. um læknishéraðasjóði verði tekin á dagskrá á morgun.