02.03.1932
Efri deild: 18. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1438 í C-deild Alþingistíðinda. (11233)
37. mál, stjórnarskipunarlög
Jón Jónsson:
Fyrirspurn mín var ekki um það, hvort Sjálfstæðisfl. hefði 2 nöfn á sínum lista, heldur hitt, hvort fulltrúi Alþýðufl. yrði ekki með á þeirra lista, þar sem báðir flokkarnir flytja þetta frv. sameiginlega og eru í nánu samstarfi um þetta mál.