30.05.1933
Efri deild: 84. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í B-deild Alþingistíðinda. (435)

192. mál, fjáraukalög 1932

Frsm. (Einar Árnason):

Það þarf ekki mikla framsögu í þessu máli. Hér er um smáar upphæðir að ræða, og er gerð grein fyrir þeim í aðalatriðum í aths., sem frv. fylgja. Fjvn. hefir athugað frv. og einstaka liði þess, og leggur hún til, að það verði samþ. eins og það liggur fyrir.