13.12.1934
Neðri deild: 58. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1454 í B-deild Alþingistíðinda. (1243)

29. mál, markaðs- og verðjöfnunarsjóður

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég lýsti yfir því við 2. umr. þessa máls, að ég fyrir mitt leyti gæti verið samþykkur þessu ákvæði í staðinn fyrir ákveðið gjald af skippundi, en álít þó, að prósentugjaldið, sem lagt er til í brtt. 559, sé of lágt, og legg ég því til, að það verði hækkað upp 6%. Vil ég mega leyfa mér að bera fram skrifl. brtt. frá mér, hæstv. fjmrh. og hv. þm. G.-K. þess efnis, að í staðinn fyrir 5% komi 6%. Vænti ég þá, að flm. geti fallizt á þetta og taki aftur aðra brtt. á þskj. 559.