15.12.1934
Efri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1455 í B-deild Alþingistíðinda. (1260)
29. mál, markaðs- og verðjöfnunarsjóður
Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Þetta frv. er nokkur hluti efnis úr bráðabirgðalögum, sem lögð hafa verið fyrir þingið af stj., og hefir orðið samkomulag um það hjá öllum flokkum í Nd., að afgr. frv. í þessu formi, sem það hér liggur fyrir. Ég held, að það sé engin ástæða til að vísa málinu til n., og vil ég því aðeins gera það að till. minni, að því verði vísað til 2. umr.