19.12.1935
Neðri deild: 103. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í C-deild Alþingistíðinda. (3407)
6. mál, ríkisútgáfa námsbóka
Forseti (JörB):
Hv. flm. þessarar brtt. hefir nú gert efni hennar að umtalsefni. En þó að ekki séu nægilega margir hv. þm. í d. til þess að hægt sé að leyfa afbrigði, geta umr. haldið áfram, vegna þess að hér eru margir á mælendaskrá, sem munu sjálfsagt vilja taka til máls um frv.