22.02.1936
Neðri deild: 6. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 391 í B-deild Alþingistíðinda. (388)

16. mál, útflutningsgjald

*Pétur Ottesen:

Það hefir atvikazt þannig, að við hv. 3. landsk. höfum flutt hér sitt frv. hvor alveg um sama efni, og fara þau náttúrlega bæði til sjútvn.

Ég hefi ekki neinu við það að bæta, sem hv. 3. landsk. sagði um þetta mál.

Í sambandi við mitt frv. vil ég taka það fram, að inn í það hefir slæðzt prentvilla, eða það hefir misritazt í handriti. Þar á að standa „óunnum“ í staðinn fyrir „óþurrkuðum“.