12.03.1943
Neðri deild: 74. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1369 í B-deild Alþingistíðinda. (119)
Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.
Fjmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Viðvíkjandi fyrirspurn hv. þm. Ísaf. er það að segja, að ég er talsvert kunnugur þessum málum frá byrjun í gegnum viðskiptanefnd, en ég vil þó kynna mér þetta til hlítar og mun gefa skýrslu því viðvíkjandi nú næstu daga.