29.04.1946
Sameinað þing: 44. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2166 í B-deild Alþingistíðinda. (126)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Samgmrh. (Emil Jónsson) :

Út af þessari fyrirspurn hv. þm. Borgf. get ég ekki sagt annað en það, að málið hefur ekki fengið venjulega afgreiðslu hér á hv. Alþ., svo að heimild liggur ekki fyrir til þessara aðgerða, eins og til var ætlazt. En ég vil segja, að mín persónulega afstaða til málsins er sú, að ég mun leitast við að greiða fyrir því, eftir því sem möguleikar eru fyrir hendi í heimild til að greiða fyrir málinu.