01.10.1945
Sameinað þing: 1. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í B-deild Alþingistíðinda. (4)

Rannsókn kjörbréfa

1. kjördeild :

ÁkJ, BBen, BK, BrB, GÍG, HermJ, HG, IngJ, IngP, JPálm, LJóh, PZ, SG, SEH, SÞ, StJSt, ÞÞ.

2. kjördeild:

BG, EE, EmJ, GÞ, GJ, GSv, GTh, JJós, JJ, MJ, ÓTh, PÞ, SigfS, STh, StgrA, SvbH, ÞG.

3. kjördeild:

ÁÁ, BSt, BÁ, KTh, EystJ, FJ, HB, JS, JörB, KA, PHerm, PM, PO, SB, SK, SkG.

Fyrir lá að rannsaka kjörbréf Katrínar Thoroddsen, 2. (vara)þm. Reykv., Björns Kristjánssonar, þm. N.-Þ., og Hallgríms Benediktssonar, 3. (vara)þm. Reykv. Kjördeildirnar skiptu með sér störfum svo sem lög mæla fyrir, þannig að 1. kjördeild fékk til athugunar kjörbréf 2. og 3. (vara)þm. Reykv. og 2. kjördeild kjörbréf þm. N.-Þ.

Varð nú fundarhlé, er kjördeildir gengu út úr þingsalnum til starfa sinna, en að rannsókn lokinni var fundi fram haldið.