16.04.1946
Neðri deild: 112. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 781 í B-deild Alþingistíðinda. (896)
168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík
Ingólfur Jónsson:
Af því að þetta er gott mál, þrír sterkir aðilar standa hér að og ekki á að útiloka bændur frá að nota hótelið sem aðra, þá segi ég já í trausti þess, að þungur skattur verði ekki lagður á bændur vegna þessarar framkvæmdar.