24.02.1947
Neðri deild: 80. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1729 í B-deild Alþingistíðinda. (2926)
92. mál, tannlækningar
Frsm. minni hl. (Garðar Þorsteinsson) :
Mig langar aðeins til að fá upplýsingar hjá hæstv. forseta um, hvernig stendur á, að þetta frv. er enn tekið af dagskrá. Ég veit ekki, hvað oft það hefur komið á dagskrá og alltaf tekið út. Ég skil ekki, að þetta sé svo flókið mál, að það þurfi oft að taka það af dagskrá, ef tími er til að ræða það.