28.03.1947
Sameinað þing: 41. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í D-deild Alþingistíðinda. (4696)

190. mál, togarakaup fyrir Stykkishólm

Gísli Sveinsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins gera þá grein fyrir atkv. mínu, að þótt ég sé með efni málsins og að mestu leyti með till., er þó það atriði eftir, sem felst í skrifl. brtt., að Stykkishólmshreppur geti fengið ábyrgð á láni til þessara kaupa ásamt hlutafélagi þar. Ég efast um, að hreppurinn takist þetta einn á hendur, og segi því nei.