25.02.1950
Efri deild: 63. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1193 í B-deild Alþingistíðinda. (1867)
119. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði
Fjmrh. (Björn Ólafsson):
Þetta atriði hefur verið athugað, og sé ég ekki betur, en að þessi heimild nái yfir þessa liði, sem hv. þm. Barð. nefndi, þar sem hér er um fasta liði í fjárl. að ræða, og ég tel eftir atvikum rétt, að út á þessa liði sé greitt 3–4 mánuði samkv. þeim styrkjum, sem voru á síðustu fjárl., og mun ég gera ráðstafanir til þess, að það verði athugað á sínum stað.