06.12.1951
Neðri deild: 37. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1107 í B-deild Alþingistíðinda. (1862)

96. mál, menntaskólar

Helgi Jónasson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af fyrirspurn hv. 3. landsk. Ég vil gefa þær upplýsingar, að það ber að skilja þetta framlag sem byrjun á stofnkostnaði við menntaskóla á Laugarvatni. Að þetta getur valdið misskilningi, stafar af ónákvæmri bókun, en það ber sem sagt að líta á þetta sem framlag til stofnkostnaðar.