16.12.1970
Efri deild: 36. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í B-deild Alþingistíðinda. (322)

8. mál, virkjun Lagarfoss

Frsm. (Jón Árm. Héðinsson):

Herra forseti. Iðnn. hefur athugað frv. til laga um virkjun Lagarfoss. Í nál. 263 kemur fram, að nm. eru sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt, eins og það kemur með viðbót fram á þskj. 256. Að svo mæltu legg ég til, að frv. verði vísað til 3. umr.