12.05.1976
Neðri deild: 107. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4141 í B-deild Alþingistíðinda. (3462)

274. mál, Framkvæmdastofnun ríkisins

Forsrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Ég tel að nauðsynlegt sé að sjálfsögðu að endurskoða fjáröflun til fjárfestingarlánasjóðanna og þ. á m. til Stofnlánadeildar landbúnaðarins. En ég hygg að hv. fyrirspyrjanda sé það manna kunnugast að það er umfangsmeira mál en svo að unnt sé að gera því skil í örstuttu svari sem takmarkað er tímans vegna og aðstæðna.