Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 1998. Útgáfa 122b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um bifreiðagjald
1988 nr. 39 20. maí
1. gr. Greiða skal til ríkissjóðs bifreiðagjald af bifreiðum sem skráðar eru hér á landi eins og nánar er ákveðið í lögum þessum.
Með gjaldskyldri bifreið samkvæmt lögum þessum er átt við vélknúið ökutæki sem uppfyllir eitt eða fleiri eftirtalinna skilyrða:
a. Vélknúið ökutæki sem aðallega er ætlað til fólks- eða vöruflutninga og er á fjórum hjólum eða fleiri, eða á þremur hjólum, og er 400 kg að eigin þyngd eða meira og hannað er til hraðari aksturs en 30 km á klukkustund eða aka má svo hratt án verulegra breytinga.
b. Vélknúið ökutæki sem aðallega er ætlað til að draga annað ökutæki og hannað er til hraðari aksturs en 30 km á klukkustund.
c. Vélknúið ökutæki sem aðallega er ætlað til fólks- eða vöruflutninga eða til að draga annað ökutæki og er búið beltum og eftir atvikum stýrimeiðum/stýrihjólum og er 400 kg að eigin þyngd eða meira.
d. Fjórhjól er fellur í vörulið 8703 í viðauka I við tollalög, nr. 55/1987, með síðari breytingum.
Verði ágreiningur um gjaldskyldu bifreiðar sker fjármálaráðherra úr.
2. gr. [Bifreiðagjald á hverju gjaldtímabili skal vera 5,86 kr. fyrir hvert kg af eigin þyngd bifreiðar allt að 1.000 kg, 9,66 kr. fyrir hvert kg af eigin þyngd bifreiðar umfram það allt að 3.000 kg, en 2.000 kr. af hverju byrjuðu tonni af eigin þyngd bifreiðar umfram það. Þó skal aldrei greiða lægra gjald en 2.993 kr. af hverri bifreið á hverju gjaldtímabili.] 1)
1)L. 83/1998, 9. gr.
3. gr. Gjalddagar bifreiðagjalds eru 1. janúar ár hvert vegna gjaldtímabilsins 1. janúar til 30. júní og 1. júlí ár hvert vegna gjaldtímabilsins 1. júlí til 31. desember … 1) [Eindagar bifreiðagjalds eru 15. febrúar og 15. ágúst ár hvert.] 1) Skal gjaldið innheimtast þar sem bifreið er skráð á gjalddaga.
Gjald vegna nýskráðra bifreiða skal greiðast í hlutfalli við skráningartíma þeirra á gjaldtímabilinu og telst gjaldskyldan frá og með afhendingu skráningarmerkis. Gjaldið reiknast fyrir heila mánuði þannig að 15 dagar eða fleiri teljast heill mánuður, en færri dögum skal sleppt. Bifreiðagjald vegna nýskráðra bifreiða skal þó aldrei vera lægra en [523 kr.] 1) Gjald vegna nýskráðra bifreiða fellur í eindaga við skráningu.
Bifreiðagjald skal sá greiða sem er skráður eigandi á gjalddaga. Hafi orðið eigandaskipti að bifreið án þess að þau hafi verið tilkynnt til skráningar hvílir greiðsluskyldan jafnframt á hinum nýja eiganda.
Eigi skal endurgreiða gjald af bifreið sem greitt hefur verið af þótt eigandaskipti verði, hún flutt í annað skráningarumdæmi eða afskráð. Gildir greiðslan fyrir bifreiðina hver sem eigandi hennar er eða hvert sem hún er flutt á landinu.
Fjármálaráðherra er heimilt að endurgreiða, lækka eða fella niður bifreiðagjald af bifreiðum í eigu öryrkja og björgunarsveita, [bifreiðum sem ekki eru í notkun] 2) svo og bifreiðum sem eru eldri en 25 ára í upphafi gjaldárs. Getur hann í reglugerð kveðið nánar á um hverjir falli undir undanþáguheimild þessa og önnur skilyrði sem hann telur nauðsynleg.
1)L. 138/1995, 2. gr. 2)L. 122/1993, 40. gr.
4. gr. Við árlega aðalskoðun bifreiðar, sem gjaldskyld er samkvæmt þessum lögum, skal eigandi hennar eða umráðamaður færa sönnur á að greitt hafi verið af henni gjaldfallið bifreiðagjald. [Eiganda eða umráðamanni bifreiðar er þó ekki skylt að færa sönnur á að hafa greitt gjaldfallið bifreiðagjald fyrr en eftir eindaga.] 1) Að öðrum kosti skal skoðunarmaður neita um skoðun á bifreiðinni, taka af henni skráningarmerki og afhenda þau lögreglustjóra. Lögreglustjóri skal ekki afhenda þau aftur fyrr en færðar hafa verið sönnur á greiðslu bifreiðagjaldsins.
[Óheimilt er að skrá eigendaskipti að bifreið nema gjaldfallið bifreiðagjald hafi áður verið greitt.] 1)
Ef bifreiðagjald er ekki greitt fyrir eindaga skal lögreglustjóri, eftir kröfu innheimtumanns, taka af bifreiðinni skráningarmerki til geymslu svo sem að framan segir.
1)L. 138/1995, 3. gr.
5. gr. … 1)
1)L. 138/1995, 4. gr.
6. gr. Sé bifreiðagjald ekki greitt í síðasta lagi á eindaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti, sbr. III. kafla laga nr. 25/1987, af því sem ógreitt er talið frá og með gjalddaga.
7. gr. Innheimtu bifreiðagjalds annast [tollstjórar] 1) og fer um reikningsskil eftir því sem fjármálaráðherra ákveður. Heimilt er að fela [skoðunarstöðvum] 2) innheimtu bifreiðagjalds.
Bifreiðagjald nýtur lögtaksréttar.
1)L. 92/1991, 98. gr. 2)L. 138/1995, 5. gr.
8. gr. Fjármálaráðherra er heimilt að kveða nánar á um framkvæmd laga þessara í reglugerð. 1)
1)Rg. 590/1987, sbr. 526/1993. Rg. 381/1994, sbr. 642/1996 og 557/1997.
9. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. …
Ákvæði til bráðabirgða.
[I.–III.]1) …
1)L. 6/1990 og 11/1990.