Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 1999. Útgáfa 123a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um bann gegn jarðraski
1940 nr. 123 17. ágúst
1. gr. Í kaupstöðum, kauptúnum og sjávarþorpum er bannað grjótnám, malartaka og annað jarðrask í fjörum og svo langt frá flóðmáli, að öruggt sé, að ekki stafi af því landbrot eða aðrar skemmdir af völdum sjávar. Bann þetta nær þó ekki til ruðnings á bátalendingum né til grunnjöfnunar vegna hafnargerða eða annarra mannvirkja. … 1)
1)L. 48/1956, 35. gr.
2. gr. Nú hagar þannig til, þar sem sand- og malartaka er bönnuð samkvæmt 1. mgr. 1. gr., að áhættulaust virðist að taka efni í landi, sem ofangreind ákvæði ná til, og getur þá landeigandi leyft jarðraskið á ákveðnu svæði með samþykki [Náttúruverndar ríkisins] 1) að fengnum tillögum bæjarstjórnar eða hreppsnefndar. Slíkt leyfi má ekki veita til lengri tíma en 5 ára í senn, en það má endurnýja með samþykki [Náttúruverndar ríkisins], 1) ef það er þá talið hættulaust. Nú þykir einhverjum rétti sínum hallað, og getur hann þá skotið ákvörðun [Náttúruverndar ríkisins] 1) til ráðherra, og er úrskurður hans um málið fullnaðarúrskurður.
Nú hefir leyfi verið fengið, og ber þá bæjarstjórn eða hreppsnefnd að auglýsa og merkja á fullnægjandi hátt, á hvaða svæði efnisnámið sé leyft.
1)L. 93/1996, 41. gr.
3. gr. [Brot gegn lögum þessum varða sektum og fer um mál út af brotunum að hætti opinberra mála.] 1)
1)L. 75/1982, 41. gr.