Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í febrúar 2001. Útgáfa 126a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um Seðlabanka Íslands
1986 nr. 36 5. maí
I. kafli. Skipulag bankans og hlutverk.
1. gr. Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun sem er eign ríkisins en lýtur sérstakri stjórn samkvæmt lögum þessum.
2. gr. Ríkissjóður ber ábyrgð á öllum skuldbindingum Seðlabankans. Heimili og varnarþing Seðlabankans er í Reykjavík.
3. gr. Hlutverk Seðlabankans er:
a. að annast seðlaútgáfu, láta slá og gefa út mynt og vinna að því að peningamagn í umferð og framboð lánsfjár sé hæfilegt miðað við það að verðlag haldist stöðugt og framleiðslugeta atvinnuveganna sé hagnýtt á sem fyllstan og hagkvæmastan hátt,
b. [að varðveita og efla gjaldeyrisvarasjóð er nægi til þess að tryggja frjáls viðskipti við útlönd og fjárhagslegt öryggi þjóðarinnar út á við. Gjaldeyrisvarasjóðurinn skal varðveittur, eftir því sem unnt er, í tryggum og auðseljanlegum verðbréfum eða innlánum og gjaldeyri sem nota má til greiðslu hvar sem er], 1)
c. að kaupa og selja erlendan gjaldeyri, fara með gengismál og hafa umsjón og eftirlit með gjaldeyrisviðskiptum,
d. að vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um allt er varðar gjaldeyris- og peningamál,
e. að annast bankaviðskipti ríkissjóðs,
f. [að vera banki innlánsstofnana og stuðla að traustum og heilbrigðum viðskiptum á fjármagnsmarkaði], 2) 3)
[g. að stuðla að greiðri, hagkvæmri og öruggri greiðslumiðlun í landinu og við útlönd], 4) 5)
[h.] 4) að gera sem fullkomnastar skýrslur og áætlanir um allt sem varðar hlutverk bankans,
[i.] 4) að annast önnur verkefni sem samrýmanleg eru tilgangi bankans sem seðlabanka.
1)L. 14/1992, 1. gr. 2)L. 88/1998, 1. gr. 3)Rg. 308/1998, rgl. 177/2000. 4)L. 88/1998, 1. gr. 5) Rgl. 951/2000.
4. gr. Í öllu starfi sínu skal Seðlabankinn hafa náið samstarf við ríkisstjórnina og gera henni grein fyrir skoðunum sínum varðandi stefnu í efnahagsmálum og framkvæmd hennar. Sé um verulegan ágreining við ríkisstjórnina að ræða er seðlabankastjórn rétt að lýsa honum opinberlega og skýra skoðanir sínar. Hún skal engu síður telja það eitt meginhlutverk sitt að vinna að því að sú stefna, sem ríkisstjórnin markar að lokum, nái tilgangi sínum.
Seðlabankinn skal eigi sjaldnar en tvisvar á ári senda ráðherra greinargerð um þróun og horfur í peningamálum, greiðslujafnaðar- og gengismálum.
II. kafli. Seðlaútgáfa og mynt.
5. gr. Seðlabankinn hefur einkarétt til að gefa út peningaseðla og láta slá og gefa út mynt eða annan gjaldmiðil er geti gengið manna á milli í stað peningaseðla eða löglegrar myntar.
Seðlar og mynt, sem bankinn gefur út, skulu vera lögeyrir til allra greiðslna með fullu ákvæðisverði.
[Tilefnismynt sem bankinn gefur út skal vera lögeyrir til allra greiðslna með fullu ákvæðisverði. Seðlabankanum er heimilt að ákveða að tilefnismynt sé seld með álagi á ákvæðisverð hennar. Ágóða af sölu tilefnismyntar skal varið til lista, menningar eða vísinda samkvæmt ákvörðun ráðherra.] 1)
Ráðherra ákveður að fengnum tillögum Seðlabankans lögun, útlit og fjárhæð seðla þeirra og myntar, sem bankinn gefur út, og lætur birta auglýsingu um það efni. 2)
1)L. 81/2000, 2. gr. 2) Augl. 117/1980.
III. kafli. Innlend viðskipti Seðlabankans.
6. gr. [Seðlabankinn tekur við innlánum frá innlánsstofnunum en til þeirra teljast viðskiptabankar, sparisjóðir, útibú erlendra innlánsstofnana og aðrar stofnanir og félög sem heimilt er lögum samkvæmt að taka við innlánum frá almenningi til geymslu og ávöxtunar.] 1)
[Seðlabankinn má ákveða að taka við innlánum frá öðrum lánastofnunum en bönkum og sparisjóðum og frá fyrirtækjum í verðbréfaþjónustu.] 1)
Seðlabankinn setur nánari reglur 2) um viðskipti sín samkvæmt þessari grein.
1)L. 88/1998, 2. gr. 2)Rg. 38/1997, rgl. 50/2000.
7. gr. [Seðlabankinn getur veitt þeim aðilum sem fjallað er um í 6. gr. og eiga innlánsviðskipti við bankann lán með kaupum verðbréfa eða á annan hátt gegn tryggingum sem bankinn metur gildar. Lánsviðskipti þessi geta verið í innlendri eða erlendri mynt.] 1)
… 1)
Seðlabankinn setur nánari reglur 2) um viðskipti sín samkvæmt þessari grein.
1)L. 88/1998, 3. gr. 2)Rg. 38/1997, rgl. 50/2000.
8. gr. [Seðlabankanum er heimilt með samþykki ráðherra að ákveða að lánastofnanir skuli eiga fé á bundnum reikningi í bankanum sem nemi tilteknu hlutfalli af ráðstöfunarfé eða innlánsfé þeirra. Þá er bankanum heimilt að ákveða að tiltekinn hluti aukningar innlána eða ráðstöfunarfjár við hverja stofnun skuli bundinn á reikningi í bankanum, enda fari heildarinnlánsfé eða ráðstöfunarfé sem viðkomandi stofnun er skylt að eiga í Seðlabankanum ekki fram úr því hámarki sem sett er skv. 1. málsl. þessarar málsgreinar. Enn fremur er bankanum heimilt að ákveða að verðbréfasjóðir skuli eiga fé á bundnum reikningi í bankanum.
Seðlabankinn setur nánari reglur 1) um grundvöll og framkvæmd bindingar skv. 1. mgr. að fengnu samþykki ráðherra, þar á meðal til hvaða lánastofnana og verðbréfasjóða hún tekur. Í þeim reglum má ákveða að bindihlutfall sé mismunandi eftir eðli lánastofnana og verðbréfasjóða og flokkum innlána og annarra skuldbindinga sem bindingin nær til.
[Seðlabankanum er heimilt að setja reglur 2) um lágmark eða meðaltal lauss fjár lánastofnana sem þeim ber ætíð að hafa yfir að ráða í þeim tilgangi að mæta fyrirsjáanlegum og hugsanlegum greiðsluskuldbindingum á tilteknu tímabili. Í þeim má ákveða að mismunandi ákvæði gildi um einstaka flokka lánastofnana.] 3)
Seðlabankanum er heimilt að setja lánastofnunum reglur um gjaldeyrisjöfnuð. Í slíkum jöfnuði skal auk gengisbundinna eigna og skulda telja skuldbindingar og kröfur sem tengdar eru erlendum gjaldmiðlum utan efnahags, svo sem framvirka samninga og valréttarsamninga.
Seðlabankinn getur beitt lánastofnanir og verðbréfasjóði viðurlögum samkvæmt ákvæðum 37. gr. sé ákvörðunum bankans varðandi bindiskyldu, laust fé og gjaldeyrisjöfnuð ekki hlítt.] 4)
1)Rg. 794/1998. 2)Rg. 905/1999. 3)L. 96/1999, 1. gr. 4)L. 88/1998, 4. gr.
9. gr. Seðlabankinn ákveður vexti af innlánum við bankann og af lánum sem hann veitir.
… 1)
1)L. 88/1998, 5. gr.
10. gr. Seðlabankinn er viðskiptabanki ríkissjóðs og annast fyrir hann hvers konar bankaþjónustu. Skulu innlán ríkissjóðs geymd í Seðlabankanum eftir því sem við verður komið.
Seðlabankanum er heimilt að veita ríkissjóði lán til skamms tíma. Skulu slík lán greiðast upp innan þriggja mánaða frá lokum hvers fjárhagsárs með lántöku eða annarri fjáröflun utan Seðlabankans. Ríkisvíxlar, skuldabréf og önnur verðbréf, sem eru gefin út af ríkissjóði og Seðlabankinn kaupir á verðbréfamarkaði eða af peningastofnunum til þess að stuðla að jafnvægi á peningamarkaði, skulu ekki teljast lán til ríkissjóðs samkvæmt ákvæðum þessarar greinar.
11. gr. [Í því skyni að vinna að markmiðum sínum í peningamálum er Seðlabankanum heimilt að kaupa og selja ríkisskuldabréf og önnur trygg verðbréf á skipulegum verðbréfamarkaði eða í beinum viðskiptum við lánastofnanir.
Seðlabankanum er heimilt að gefa út verðbréf í innlendri eða erlendri mynt til að selja lánastofnunum sem geta átt viðskipti við hann. Óheimilt er að framselja slík verðbréf til annarra en lánastofnana sem geta átt innlánsviðskipti við bankann.] 1)
1)L. 88/1998, 6. gr.
12. gr. Heimilt er Seðlabankanum að reka önnur bankaviðskipti sem samrýmanleg geta talist hlutverki hans sem seðlabanka. Hann skal ekki annast viðskipti sem samkvæmt lögum, venju eða eðli máls teljast verkefni innlánsstofnana. Honum er því óheimilt að skipta við almenning og keppa um viðskipti við innlánsstofnanir. Rísi ágreiningur um ákvæði þessarar greinar sker ráðherra úr.
[IV. kafli. Öflun upplýsinga.]1)
1)L. 88/1998, 7. gr.
[13. gr. Seðlabankinn getur milliliðalaust aflað upplýsinga frá innlánsstofnunum, öðrum lánastofnunum en bönkum og sparisjóðum og fyrirtækjum í verðbréfaþjónustu sem eru í viðskiptum við bankann skv. 6. gr., sbr. 7. gr., auk fyrirtækja í greiðslumiðlun, til þess að auðvelda honum að sinna hlutverki sínu skv. 3. gr.
Á grundvelli ákvæða 1. mgr. getur Seðlabankinn krafist þess að þargreindar stofnanir og félög veiti upplýsingar um efnahag, rekstur og önnur atriði sem bankinn metur nauðsynlegar. Upplýsingarnar skulu veittar á þann hátt sem óskað er. Þess skal gætt sem frekast er kostur að samnýta upplýsingar sem aflað er samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, sbr. 34. gr. laga þessara.] 1)
1)L. 88/1998, 7. gr.
[14. gr. Nú er kröfum Seðlabankans um upplýsingar skv. 13. gr. ekki sinnt og getur bankinn þá gripið til viðurlaga gagnvart hlutaðeigandi aðila, sbr. ákvæði 37. gr.] 1)
1)L. 88/1998, 7. gr.
V. kafli. Gengismál og erlend viðskipti.
[15. gr.]1) [Seðlabankinn ákveður að fengnu samþykki ríkisstjórnarinnar hvernig verðgildi íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum skuli ákveðið. Heimilt er að ákveða að gengi krónunnar skuli skilgreint gagnvart einum erlendum gjaldmiðli, meðaltali erlendra gjaldmiðla eða samsettum gjaldmiðli, svo sem … 2) sérstökum dráttarréttindum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (SDR). Ákvörðun þar að lútandi skal birt með auglýsingu í Stjórnartíðindum. Jafnframt er heimilt að ákveða sérstakt hámarks- og lágmarksgengi íslensku krónunnar gagnvart þeirri erlendu gengisviðmiðun sem valin hefur verið. Seðlabankinn kaupir og selur erlendan gjaldeyri eða beitir öðrum aðgerðum sem hann telur nauðsynlegar og hlutast með þeim hætti til um að gengi krónunnar sé innan þeirra marka sem þannig kunna að verða ákveðin.
Seðlabankinn skal hvern þann dag, sem bankastofnanir eru almennt opnar til viðskipta, skrá sérstaklega, á þeim tíma dagsins sem hann ákveður, gengi krónunnar gagnvart helstu gjaldmiðlum. Það skal notað til viðmiðunar í opinberum samningum, dómsmálum og öðrum samningum milli aðila þegar önnur gengisviðmiðun er ekki sérstaklega tiltekin.
[Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. getur Seðlabankinn ákveðið að skrá gengi krónunnar eins og þar segir þótt bankastofnanir séu almennt lokaðar til viðskipta.] 2)
Þegar sérstaklega stendur á getur Seðlabankinn fellt niður eigin gengisskráningu og takmarkað eða stöðvað viðskipti á skipulögðum gjaldeyrismarkaði.
Seðlabankanum er heimilt að setja nánari reglur 3) um gengisskráningu og viðskipti á gjaldeyrismarkaði.] 4)
1)L. 88/1998, 7. gr. 2)L. 88/1998, 8. gr. 3)Rg. 422/1997. Rgl. 742/2000. 4)L. 14/1992, 3. gr.
[16. gr.]1) [Seðlabankinn hefur heimild til að hafa milligöngu um gjaldeyrisviðskipti og versla með erlendan gjaldeyri. Um heimildir annarra aðila til að hafa milligöngu um gjaldeyrisviðskipti og versla með erlendan gjaldeyri fer eftir ákvæðum laga um gjaldeyrismál á hverjum tíma.] 2)
1)L. 88/1998, 7. gr. 2)L. 88/1998, 9. gr.
[17. gr.]1) Seðlabankinn hefur með höndum framkvæmd greiðslusamninga við önnur ríki, svo og viðskipti við alþjóðafjármálastofnanir í umboði ríkisstjórnarinnar. Hann skal vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um allt er varðar gjaldeyrismál, þar á meðal erlendar lántökur, og taka að sér framkvæmd í þeim efnum eftir því sem um verður samið.
1)L. 88/1998, 7. gr.
[18. gr.]1) Til þess að varðveita og efla gjaldeyrisvarasjóð er Seðlabankanum heimilt að taka lán erlendis.
Enn fremur er Seðlabankanum heimilt að taka lán erlendis í því skyni að endurlána fé þetta innanlands enda komi ábyrgð ríkissjóðs til við endurlánin.
1)L. 88/1998, 7. gr.
[19. gr.]1) Seðlabankinn er fyrir ríkisins hönd fjárhagslegur aðili að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
[Ráðherra skipar einn mann og annan til vara til fimm ára í senn til að taka sæti í sjóðsráði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.] 2)
1)L. 88/1998, 7. gr. 2)L. 103/1999, 3. gr.
VI. kafli. Hagskýrslugerð.
[20. gr.]1) Seðlabankinn safnar skýrslum og gerir áætlanir um greiðslujöfnuð, gjaldeyris- og peningamál og annað sem hlutverk bankans varðar og skal hann birta opinberlega sem rækilegastar upplýsingar um þau efni.
Skylt skal öllum aðilum, sem hlut eiga að máli, að láta bankanum í té þær upplýsingar sem hann þarf á að halda vegna hagskýrslugerðar og nýtur hann í þessu efni sömu réttinda og Hagstofa Íslands og liggja sömu viðurlög við ef út af er brugðið.
1)L. 88/1998, 7. gr.
VII. kafli. Stjórn bankans.
[21. gr.]1) Yfirstjórn Seðlabankans er í höndum [forsætisráðherra] 2) og bankaráðs svo sem fyrir er mælt í lögum þessum. Stjórn bankans er að öðru leyti í höndum bankastjórnar.
1)L. 88/1998, 7. gr. 2)L. 103/1999, 4. gr.
[22. gr.]1) Í bankastjórn Seðlabankans eiga sæti þrír bankastjórar. Bankastjórnin kýs sér formann úr sínum hópi til þriggja ára í senn.
Ráðherra skipar bankastjóra að fengnum tillögum bankaráðs. Bankastjórar skulu eigi skipaðir til lengri tíma en [fimm] 2) ára í senn.
Forfallist bankastjóri um stundarsakir getur ráðherra að fengnum tillögum bankaráðs sett mann í hans stað.
1)L. 88/1998, 7. gr. 2)L. 83/1997, 158. gr.
[23. gr.]1) Bankastjórnin ber ábyrgð á rekstri Seðlabankans og fer með ákvörðunarvald í öllum málefnum hans sem ekki eru öðrum falin með lögum þessum.
Bankastjórnin heldur fundi svo oft sem þurfa þykir og hvenær sem einhver bankastjóranna óskar þess.
Undirskrift tveggja bankastjóra þarf til að skuldbinda bankann. Þó er bankaráðinu heimilt að veita tilteknum starfsmönnum bankans umboð til þess að skuldbinda bankann með undirskrift sinni í tilteknum málefnum. Skal nánar kveðið á um umboð til skuldbindingar í reglugerð.
1)L. 88/1998, 7. gr.
[24. gr.]1) Bankaráð ákveður laun og önnur ráðningarkjör bankastjóra. Við starfslok skulu bankastjórar fá greidd biðlaun í tólf mánuði, jafnhá föstum launum er starfi þeirra fylgdu. Eigi bankastjóri rétt til eftirlauna fellur niður greiðsla biðlauna. Taki bankastjóri við annarri stöðu á biðlaunatíma fellur niður greiðsla biðlauna ef stöðunni fylgja jafnhá eða hærri laun, ella greiðist launamismunurinn til loka biðlaunatímans. Bankaráð ákveður eftirlaun bankastjóra.
Bankastjórum og aðstoðarbankastjórum er óheimilt að sitja í stjórn stofnana og atvinnufyrirtækja utan bankans eða taka þátt í atvinnurekstri að öðru leyti nema slíkt sé boðið í lögum eða um sé að ræða stofnun eða atvinnufyrirtæki sem bankinn á aðild að.
1)L. 88/1998, 7. gr.
[25. gr.]1) Að fengnu áliti bankaráðs getur ráðherra vikið bankastjóra úr starfi. Í uppsagnarbréfi skal tilgreina ástæður uppsagnar. Bankastjóri skal eiga rétt á fullum launum í eitt til þrjú ár, þó aldrei lengur en til loka ráðningartíma, og eftirlaunum samkvæmt nánari ákvörðun bankaráðs. Segi bankastjóri upp starfi áður en ráðningartíma hans er lokið skal hann njóta fastra launa í allt að tólf mánuði og eftirlauna samkvæmt ákvörðun bankaráðs.
Hafi bankastjóri brotið af sér í starfi getur ráðherra vikið honum úr starfi fyrirvaralaust án launa.
1)L. 88/1998, 7. gr.
[26. gr.]1) Bankaráð Seðlabankans skipa fimm menn kjörnir hlutbundinni kosningu af Alþingi til fjögurra ára í senn ásamt jafnmörgum til vara. Ráðherra skipar formann bankaráðs til fjögurra ára úr hópi hinna kjörnu aðalmanna og annan varaformann.
Ráðherra ákveður þóknun bankaráðsmanna.
1)L. 88/1998, 7. gr.
[27. gr.]1) Bankaráð hefur yfirumsjón með starfsemi Seðlabankans og skal bankastjórnin hafa náið samráð við bankaráð um stefnu bankans almennt og leita álits þess um ákvarðanir í mikilvægum málum er stefnu bankans varða, svo sem um ákvarðanir samkvæmt 8. gr. … 2) Enn fremur skal bankastjórnin gefa bankaráði reglulega skýrslur um störf bankans og þróun gjaldeyris- og peningamála.
Bankaráð gerir tillögur um reglugerð bankans og erindisbréf bankastjóra er ráðherra gefur út.
Bankaráð heldur fundi eftir þörfum en að jafnaði ekki sjaldnar en hálfsmánaðarlega. Formaður bankaráðs undirbýr fundi bankaráðs með bankastjórn. Bankastjórar sitja fundi bankaráðs og taka þátt í umræðum nema bankaráð ákveði annað.
Bankaráð skal hafa eftirlit með öllum eignum bankans, taka ákvarðanir um framkvæmdir og ráðstöfun á tekjuafgangi að því marki sem annað er ekki ákveðið í lögum.
1)L. 88/1998, 7. gr. 2)L. 88/1998, 11. gr.
[28. gr.]1) Fundir bankaráðs eru lögmætir ef þrír bankaráðsmenn eru á fundi. Afl atkvæða ræður úrslitum við afgreiðslu máls.
1)L. 88/1998, 7. gr.
[29. gr.]1) [Sérstök endurskoðunardeild skal starfa við bankann undir umsjón bankaráðs. Auk þess skal endurskoðun hjá Seðlabanka Íslands framkvæmd af Ríkisendurskoðun og skoðunarmanni, sem ráðherra skipar til fjögurra ára í senn, og skal hann vera löggiltur endurskoðandi.] 2)
1)L. 88/1998, 7. gr. 2)L. 11/1989, 3. gr.
[30. gr.]1) Bankaráð ræður forstöðumann endurskoðunardeildar Seðlabankans og segir honum upp starfi. Bankaráð ákveður laun og önnur ráðningarkjör þessa starfsmanns.
Bankastjórn ræður alla aðra starfsmenn bankans og segir þeim upp starfi. Ráðning aðstoðarbankastjóra er þó háð samþykki bankaráðs.
1)L. 88/1998, 7. gr.
VIII. kafli. Reikningsskil.
[31. gr.]1) Reikningsár Seðlabankans er almanaksárið. Fyrir hvert reikningsár skal gera ársreikning og skal gerð hans lokið svo fljótt sem auðið er.
Um gerð ársreiknings fer eftir lögum og góðri reikningsskilavenju, bæði að því er varðar uppsetningu reiknings, mat á hinum einstöku liðum og önnur atriði.
Ráðherra skal setja nánari reglur 2) um reikningsskil og gerð ársreiknings að fengnum tillögum bankaráðs.
1)L. 88/1998, 7. gr. 2) Rgl. 67/2000.
[32. gr.]1) Að lokinni endurskoðun á ársreikningi bankans skal hann undirritaður af bankastjórn og staðfestur af bankaráði. Hafi bankaráðsmaður fram að færa athugasemdir við ársreikning skal hann undirritaður með fyrirvara og koma skal fram hvers eðlis fyrirvarinn er.
Endurskoðaður reikningur skal lagður fyrir ráðherra til úrskurðar eigi síðar en fjórum mánuðum eftir lok reikningsárs.
Ársreikning skal birta í Stjórnartíðindum og í ársskýrslu Seðlabankans. Mánaðarlegt efnahagsyfirlit skal jafnframt birta í Lögbirtingablaði.
1)L. 88/1998, 7. gr.
[33. gr.]1) Árlega skal helmingur af meðalhagnaði næstliðinna þriggja ára, að frádregnu framlagi í arðsjóð skv. 2. mgr., greiddur í ríkissjóð. Skal við þann útreikning endurmeta hagnað fyrri áranna til verðlags hins þriðja. Greiðsla skal fara fram hinn 1. júní ár hvert.
Árlega skal leggja í arðsjóð a.m.k. jafngildi 40 milljóna króna miðað við verðlag í árslok 1984. [Arðsjóður skal ávaxtaður í tryggum og auðseljanlegum verðbréfum eða innlánum en helmingur árlegra tekna hans skal renna í Vísindasjóð, sbr. lög um Rannsóknarráð Íslands.] 2)
1)L. 88/1998, 7. gr. 2)L. 88/1998, 12. gr.
IX. kafli. Ýmis ákvæði.
[34. gr.]1) Bankaráðsmenn, bankastjórar og allir starfsmenn bankans eru bundnir þagnarskyldu um allt það er varðar hagi viðskiptaaðila bankans, málefni bankans sjálfs, svo og um önnur atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli málsins, nema dómari úrskurði að upplýsingar sé skylt að veita fyrir dómi eða lögreglu eða skylda sé til að veita upplýsingar lögum samkvæmt.
Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.
[Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er Seðlabankanum heimilt að eiga gagnkvæm upplýsingaskipti við opinbera aðila erlendis um atriði er lög þessi taka til að því tilskildu að sá sem óskar upplýsinga sé háður samsvarandi þagnarskyldu.] 2)
[Seðlabanki Íslands skal veita Fjármálaeftirlitinu allar upplýsingar sem bankinn býr yfir og nýtast kunna í starfsemi Fjármálaeftirlitsins. Upplýsingar, sem veittar eru samkvæmt þessari grein, eru háðar þagnarskyldu samkvæmt lögum þessum og lögum um Fjármálaeftirlitið. Bankastjórn Seðlabankans og stjórn Fjármálaeftirlitsins skulu gera með sér sérstakan samstarfssamning þar sem kveðið er nánar á um framkvæmd þessarar málsgreinar.] 3)
1)L. 88/1998, 7. gr. 2)L. 88/1998, 13. gr. 3)L. 88/1998, 13. gr.
[35. gr.]1) Bankinn er undanþeginn tekju- og eignarskatti, sbr. lög um tekju- og eignarskatt.
Bækur bankans, ávísanir og hvers konar skuldbindingar, sem gefnar eru út af bankanum og í nafni hans, svo og skuldbindingar sem veita bankanum handveðsrétt, arðmiðar af skuldabréfum bankans og framsöl þeirra, skulu undanþegin stimpilgjaldi.
1)L. 88/1998, 7. gr.
X. kafli. Gildistökuákvæði.
[36. gr.]1) Lög þessi öðlast gildi 1. nóvember 1986.
Ákvæði VIII. kafla um reikningsskil gilda um reikningsárið 1985. Ákvæði 2. málsl. 2. mgr. [22. gr.] 2) og 2. mgr. [24. gr.] 2) taka einungis til þeirra sem ráðnir eru bankastjórar eftir gildistöku laga þessara. Ákvæði 1. mgr. [24. gr.] 2) skulu eigi skerða eftirlaun þeirra sem gegna stöðu bankastjóra að föstu aðalstarfi við gildistöku laganna.
1)L. 88/1998, 7. gr. 2)L. 88/1998, 14. gr.
[37. gr.]1) Í reglugerð, 2) sem ráðherra gefur út að fengnum tillögum bankaráðs, skal setja nánari ákvæði um starfsemi bankans í samræmi við lög þessi, þar á meðal skal ákveða viðurlög í formi dagsekta og refsivaxta sé ákvörðunum bankans ekki hlítt. [Innheimt viðurlög samkvæmt þessari grein skulu renna að 3/ 4 hlutum til ríkissjóðs og skulu þau greidd 1. júní ár hvert fyrir næstliðið ár.] 3)
1)L. 88/1998, 7. gr. 2)Rg. 470/1986, sbr. rg. 136/1989, 111/1995 og 640/1999 (um Seðlabanka Íslands). Rg. 211/1988 (um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála). Rg. 506/1996. Rg. 419/1997. 3)L. 11/1989, 4. gr.
[38. gr.]1) …
1)L. 88/1998, 7. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.–V. …
VI. … 1)
1)L. 11/1989, 5. gr.