Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. febrúar 2010. Útgáfa 138a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um útflutningsaðstoð
2002 nr. 160 20. desember
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. janúar 2003. Breytt með l. 64/2007 (tóku gildi 4. apríl 2007) og l. 75/2007 (tóku gildi 1. ágúst 2007).
I. kafli. Samráðsnefnd atvinnulífs og stjórnvalda um utanríkisviðskipti og útflutningsaðstoð.
1. gr. Samráðsnefnd atvinnulífs og stjórnvalda um utanríkisviðskipti og útflutningsaðstoð sinnir stefnumótun og skilgreinir samvinnu- og átaksverkefni í útflutningsaðstoð og markaðssetningu. Hún er einnig vettvangur til samráðs og skoðanaskipta um markaðssetningu íslensks útflutnings á erlendum vettvangi. [Nefndin skal funda eigi sjaldnar en tvisvar á ári.] 1)
Í samráðsnefndinni sitja fulltrúar samtaka úr atvinnulífinu og stjórnvalda og stjórn Útflutningsráðs Íslands. [Utanríkisráðherra skipar fulltrúa í samráðsnefndina að höfðu samráði við stjórn Útflutningsráðs.] 1) Honum er jafnframt heimilt í reglugerð að veita öðrum samtökum eða stofnunum aðild að samráðsnefndinni að fenginni umsögn hennar.
Fulltrúar samtaka úr atvinnulífinu í samráðsnefndinni velja fjóra aðalmenn og fjóra varamenn til setu í stjórn Útflutningsráðs.
1)L. 64/2007, 1. gr.
II. kafli. Útflutningsráð Íslands.
2. gr. Útflutningsráð Íslands hefur það hlutverk að koma á auknu samstarfi fyrirtækja, hagsmunasamtaka og stjórnvalda í málum er lúta að eflingu útflutnings og veita útflytjendum og öðrum þeim er afla gjaldeyris á annan hátt alhliða þjónustu og ráðgjöf í því skyni að greiða fyrir og auka útflutning á vöru og þjónustu. Þá skal Útflutningsráð vera stjórnvöldum til ráðuneytis í málum sem varða markaðssókn og útflutningsaðstoð.
3. gr. Stjórn Útflutningsráðs skipuleggur og ákveður verkefni ráðsins. Stjórnin skal vera utanríkisráðherra til ráðuneytis um fyrirkomulag viðskiptaþjónustu á erlendum vettvangi og um áherslur í utanríkisviðskiptamálum.
Stjórnina skipa sjö menn sem valdir eru til tveggja ára í senn. Utanríkisráðherra skipar fjóra stjórnarmenn eftir tilnefningu fulltrúa atvinnulífsins í samráðsnefnd, sbr. ákvæði 3. mgr. 1. gr., og þrjá stjórnarmenn án tilnefningar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum.
4. gr. Tekjur Útflutningsráðs eru:
1. Markaðsgjald, 0,05%, sem lagt er á gjaldstofn til greiðslu tryggingagjalds eins og hann er skilgreindur í III. kafla laga nr. 113/1990, um tryggingagjald. Um álagningu og innheimtu markaðsgjalds fer eftir ákvæðum þeirra laga. Markaðsgjald má draga frá tekjum þess rekstrarárs þegar stofn þess myndaðist.
2. Þóknun fyrir veitta þjónustu.
3. Sérstök framlög og aðrar tekjur.
Útflutningsráði ber að stofna til samstarfs við þá aðila sem vinna að markaðssetningu á Íslandi fyrir erlenda fjárfesta og skal ráðstafa 14% af tekjum af markaðsgjaldi til verkefna af þeim toga.
5. gr. Útflutningsráð skal veita íslenskum fyrirtækjum aðstoð við markaðssetningu á erlendum mörkuðum. Útflutningsráð getur enn fremur veitt opinberum aðilum þjónustu við markaðssókn fyrir einstakar atvinnugreinar á erlendum mörkuðum. Þá getur Útflutningsráð veitt fé til kaupa á þjónustu viðskiptafulltrúa í sendiráðum Íslands erlendis. Útflutningsráði er einnig heimilt að ráða eða styrkja menn til starfa erlendis í þágu þeirrar starfsemi sem ráðið sinnir.
Útflutningsráð skal starfrækja skrifstofu sem annast öll dagleg störf og þau verkefni er stjórnin tekur ákvörðun um. Skrifstofan skal hafa sjálfstæðan fjárhag og reikningshald. Hún skal undanþegin opinberum gjöldum og sköttum til ríkissjóðs og sveitarfélaga. Stjórnin ræður framkvæmdastjóra og ákveður laun og önnur starfskjör hans. Framkvæmdastjóri ræður annað starfsfólk. Stjórnin ákveður gjaldskrá fyrir þjónustu skrifstofunnar. Þess skal gætt að útseld þjónusta standi að mestu leyti undir kostnaði við þau störf sem unnin eru samkvæmt beiðni einstakra útflytjenda.
6. gr. Utanríkisráðherra er heimilt, að fenginni umsögn stjórnar Útflutningsráðs, að kveða nánar á í reglugerð um starfsemi Útflutningsráðs og um verkaskiptingu milli þess og utanríkisráðuneytisins.
7. gr. [Verði ekki annað ákveðið með lögum fellur markaðsgjald skv. 1. tölul. 1. mgr. 4. gr. niður frá og með 1. janúar 2013, þó þannig að álagning gjaldsins fari fram árið 2013 vegna gjaldstofns ársins 2012.] 1)
1)L. 64/2007, 2. gr.
III. kafli. Gildistaka.
8. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2003. …