Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 3. maí 2019. Útgáfa 149b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um utanríkisþjónustu Íslands
1971 nr. 39 16. apríl
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 11. maí 1971. Breytt með l. 86/1989 (tóku gildi 14. júní 1989), l. 83/1997 (tóku gildi 6. júní 1997), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011) og l. 130/2016 (tóku gildi 1. júlí 2017).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við utanríkisráðherra eða utanríkisráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr.
Utanríkisþjónustan fer með utanríkismál og gætir í hvívetna hagsmuna Íslands gagnvart öðrum ríkjum. Hún skal einkum gæta hagsmuna Íslands að því er snertir
1. stjórnmál og öryggismál,
2. utanríkisviðskipti, og
3. menningarmál.
Utanríkisþjónustan annast í umboði forseta samningagerðir við önnur ríki, nema þar frá sé gerð undantekning í lögum eða forsetaúrskurði.
Þá skal utanríkisþjónustan einnig veita ríkisborgurum vernd og aðstoð gagnvart erlendum stjórnvöldum, stofnunum og einstaklingum.
2. gr.
Utanríkisþjónustan greinist í [ráðuneyti], 1) sendiráð Íslands, fastanefndir hjá alþjóðastofnunum og ræðisskrifstofur.
1)L. 126/2011, 51. gr.
3. gr.
Yfirstjórn utanríkisþjónustunnar er hjá [ráðuneytinu], 1) og hefur það eftirlit með því, að lögum og reglugerðum um framkvæmd utanríkismála sé framfylgt.
[Ráðuneytisstjóri sér um daglegan rekstur ráðuneytisins ásamt öðrum starfsmönnum sem það er falið.] 1)
1)L. 126/2011, 51. gr.
4. gr.
Hafa skal sendiráð, fastanefndir hjá alþjóðastofnunum og ræðisskrifstofur á þeim stöðum erlendis, þar sem slíkt er álitið nauðsynlegt til gæslu hagsmuna Íslands.
Ákveða skal með forsetaúrskurði, á hvaða stöðum skuli hafa sendiráð, fastanefndir hjá alþjóðastofnunum og sendiræðisskrifstofur (sbr. 7. gr.). 1)
Um ákvarðanir samkvæmt þessari grein skal hafa samráð við utanríkismálanefnd.
1)Forsúrsk. 7/2003.
5. gr.
Heimilt er [ráðherra] 1) að fela forstöðumanni sendiráðs að veita forstöðu sendiráðum í fleiri löndum en einu eða vera jafnframt fastafulltrúi hjá alþjóðastofnunum.
Fela má forstöðumanni sendiráðs og öðrum sendiráðsmönnum að annast ræðisstörf jafnframt öðrum störfum.
1)L. 126/2011, 51. gr.
6. gr.
Forstöðumenn sendiráða eru sendiherrar eða sendifulltrúar. Forstöðumenn fastanefnda hjá alþjóðastofnunum eru fastafulltrúar og getur [ráðherra] 1) veitt þeim sendiherranafnbót, meðan þeir gegna því starfi, séu þeir eigi skipaðir sendiherrar.
1)L. 126/2011, 51. gr.
7. gr.
Ræðismenn eru ýmist úr hópi fastra [starfsmanna] 1) utanríkisþjónustunnar, sendiræðismenn, eða valdir til starfa fyrir utanríkisþjónustuna, kjörræðismenn. Hinir síðar nefndu þurfa eigi að vera íslenskir ríkisborgarar. Þeir taka eigi laun, en heimilt er, ef ástæða þykir til, að greiða þeim skrifstofufé að einhverju leyti.
Aðalræðismenn veita aðalræðisskrifstofum forstöðu, ræðismenn veita ræðisskrifstofum forstöðu og vararæðismenn veita vararæðisskrifstofum forstöðu.
1)L. 83/1997, 152. gr.
8. gr.
Starfsmenn utanríkisþjónustunnar aðrir en kjörræðismenn skiptast í þessa flokka heima og erlendis:
1. flokkur: Ráðuneytisstjóri. Sendiherrar.
2. flokkur: Skrifstofustjóri. Sendifulltrúar. Aðalræðismenn.
3. flokkur: Deildarstjórar. Sendiráðunautar. Ræðismenn.
4. flokkur: Fulltrúar A-flokks. Sendiráðsritarar. Vararæðismenn.
5. flokkur: Fulltrúar B-flokks. Aðstoðarmenn.
Auk þess starfa í utanríkisþjónustunni skjalavörður [ráðuneytisins], 1) bókarar, ritarar og annað starfsfólk eftir nánari ákvörðun [ráðuneytisins]. 1)
1)L. 126/2011, 51. gr.
9. gr.
[Ráðherra skipar til fimm ára í senn þá [embættismenn] 1) sem taldir eru í 1. og 2. flokki 8. gr. Heimilt er þó að skipa kjörræðismenn ótímabundið. Aðrir starfsmenn eru ráðnir.] 2)
1)L. 130/2016, 8. gr. 2)L. 83/1997, 153. gr.
10. gr.
[Starfsmenn utanríkisþjónustunnar eru skyldir til að starfa sem fulltrúar utanríkisþjónustunnar erlendis eða í [ráðuneytinu] 1) samkvæmt ákvörðun ráðherra. Eigi þarf nýja skipun þótt embættismaður sé fluttur milli staða eða starfa innan sama flokks skv. 8. gr. en skipunartími hans framlengist við flutninginn til fimm ára í senn.] 2)
1)L. 126/2011, 51. gr. 2)L. 83/1997, 154. gr.
11. gr.
Auk þeirra starfsmanna, sem taldir eru í 8. gr., er heimilt að ráða menn í utanríkisþjónustuna um tiltekinn tíma til að gegna sérstökum störfum, t.d. sem viðskiptafulltrúar, fiskifulltrúar, blaðafulltrúar eða menningarfulltrúar. Viðskiptafulltrúar skulu vinna að markaðsleit fyrir íslenskar afurðir og greiða á annan hátt fyrir viðskiptum við aðrar þjóðir.
Þann tíma, er menn gegna störfum í utanríkisþjónustunni samkvæmt 1. mgr. þessarar greinar, skulu þeir, eftir því sem við á, hlíta sömu reglum og fastir [starfsmenn] 1) utanríkisþjónustunnar í samsvarandi störfum.
1)L. 83/1997, 155. gr.
12. gr.
Í [ráðuneytinu] 1) skal vera bókasafn um þjóðarétt og alþjóðamál.
[Ráðuneytið] 1) sér um skrásetningu allra samninga Íslands við önnur ríki og útgáfu þeirra.
Auk annarra starfa hefur skjalavörður ráðuneytisins að jafnaði með höndum umsjá bókasafnsins og skrásetningu og útgáfu samninga.
Heimilt er að veita fræðimönnum afnot af bókasafni ráðuneytisins að fengnu leyfi ráðherra.
1)L. 126/2011, 51. gr.
13. gr.
Starfsmenn utanríkisþjónustunnar taka laun samkvæmt almennum reglum um laun starfsmanna ríkisins. Auk þess skulu starfsmenn erlendis fá greiddar staðaruppbætur, sem miðast við kostnað á nauðsynjum (fæði, húsnæði o.fl.) og aðrar sérstakar aðstæður á hverjum stað. Þá skulu starfsmenn utanríkisþjónustunnar, sem dveljast langdvölum erlendis, fá greiddan hluta af kostnaði við að senda börn sín í skóla á Íslandi. Þessar staðaruppbætur skulu ákveðnar samkvæmt reglum er [ráðherra] 1) setur að höfðu samráði við utanríkismálanefnd. Reglur skulu settar á sama hátt um greiðslur sjúkrakostnaðar starfsmanna utanríkisþjónustunnar erlendis.
1)L. 126/2011, 51. gr.
14. gr.
Óheimilt er starfsmönnum utanríkisþjónustunnar að vinna störf utan hennar, nema sérstaklega standi á og samþykki [ráðherra] 1) komi til.
Að öðru leyti gilda um starfsmenn utanríkisþjónustunnar lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, eftir því sem við á. [Þó er heimilt að víkja frá ákvæði 7. gr. þeirra laga að því er varðar embættismenn í 1. flokki 8. gr. þessara laga.] 2)
Ákvæði þessarar greinar taka ekki til kjörræðismanna.
1)L. 126/2011, 51. gr. 2)L. 83/1997, 156. gr.
15. gr. … 1)
1)L. 86/1989, 16. gr.
16. gr.
Kostnaður samkvæmt lögum þessum greiðist úr ríkissjóði.
17. gr.
Fyrir embættisverk starfsmanna utanríkisþjónustunnar skal innheimta gjald eftir nánari fyrirmælum, er [ráðherra] 1) setur með reglugerð. 2)
1)L. 126/2011, 51. gr. 2)Rg. 353/1999.
18. gr.
[Ráðherra] 1) setur almennar starfsreglur fyrir starfsmenn utanríkisþjónustunnar og ákveður starfssvið þeirra. 2)
1)L. 126/2011, 51. gr. 2)Rg. 625/1999. Rg. 55/2004.