131. löggjafarþing — 63. fundur
 31. janúar 2005.
Varamenn taka þingsæti.

[15:02]
Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur bréf frá Kristjáni L. Möller, varaformanni þingflokks Samfylkingarinnar, dagsett 31. janúar 2005:

„Þar sem Bryndís Hlöðversdóttir, 3. þm. Reykv. n., getur ekki sótt þingfundi á næstunni vegna veikinda óska ég eftir því með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, taki sæti hennar á Alþingi á meðan.“

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.